|
Matur unga fólksins
|
|
15/10 2008 kl. 10:36:21 |
|
Egg eru ódýr og hollur matur sem bla bla bla… Komum okkur að efninu. Hitið ofninn í 180°C. Skrælið tvær stórar kartöflur og þrjár gulrætur. Sneiðið kartöflurnar í skífur og skerið gulræturnar langsum. Setjið í fat ásamt skvettu af vatni og olíu, álpappír yfir (eða lok) og inn í ofn. 8 egg eru sett í skál og þau hrærð vel saman. Kryddið með teskeið af oregano, tsk. basilika, tsk. paprikukrydd, salt og pipar eftir smekk. Hrærið áfram. 
Hitið upp pönnuna og setjið eggin yfir. Best er að nota pönnu sem má fara inn í ofn. Steikið við vægan hita þar til kakan er að mestu leyti föst (rétt aðeins hrá á toppnum). Skerið niður papriku og rauðlauk og dreifið yfir kökuna. Takið kartöflurnar og gulræturnar úr ofninum og setjið yfir kökuna. Ef pannan þolir ekki að fara inn í ofninn, takið kökuna varlega af pönnunni og setjið á plötu eða álpappír og inn í ofn. Bakið í um 20-30 mínútur. Setjið að lokum rifinn ost yfir og berið fram þegar osturinn hefur bráðnað.
Gott er að bera kökuna fram með fersku salati. Hægt er að setja hvað sem er á eggjakökuna, s.s. skinku, tómata, hakk eða það sem hugurinn girnist. Matur unga fólksins mælir þó hvorki með lakkrís né súkkulaði ofan á eggjakökuna. |
|
Last Updated ( 15/10 2008 kl. 10:39:40 )
|