Forsíða
Uppskriftir
Leita
Greinar
Hafa samband


Prótínbollur PDF Print E-mail
Matur unga fólksins   
15/10 2008 kl. 11:05:13
bollur

Heimalöguð brauð eru oftar en ekki mun betri en þau verksmiðjuframle

iddu. Kosturinn við brauðin er að maður veit alltaf hvað er í brauðinu. Þessar bollur eru grófar, góðar og einfaldar. Hitið ofninn í 180 °C á yfir/undir hita.

5 bollar hveiti
1 bolli haframjöl1 bolli heilhveiti
1 bolli prótínduft (má sleppa)
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft1 tsk. salt
1 msk. sykur

Blandið þurrefnunum vel saman.

Við þurrefnin er blandað þremur eggjum, 2 msk. matarolíu,  einum bolla af súrmjólk og mjólk þar til deigið er sæmilega klístrað.

Deiginu má skipta í ca. 8 bollur sem eru settar á plötu. Þar sem deigið skal vera klístrað viðkomu er nauðsynlegt að nota áhöld, t.d. sleif eða matskeið til að forma bollurnar.

Bakið í 30-40 mínútur í miðjum ofni, þar til bollurnar eru ljósbrúnar. Stinga má prjón inn í bollurnar og ef deig situr á prjóninum þegar hann er dreginn út, eru bollurnar hráar í miðjunni og þarf að baka þær örlítið lengur. 

Last Updated ( 15/10 2008 kl. 11:11:04 )

http://www.maturungafolksins.com/


eXTReMe Tracker