|
Matur unga fólksins
|
|
05/05 2008 kl. 05:56:48 |
|
Í vorhretinu á Íslandi getur verið fínt að fá sér sjóðheita grænmetissúpu en þetta er síðasta vetrarsúpan í bili. Þessi uppskrift er mjög stór og hentar vel til að frysta og hita upp síðar. Lesendur geta vitaskuld minnkað uppskriftina að vild. 
5 lítrar af vatni eru settir í pott og kveikt undir. Í pottinn er sett: 4 stórar gulrætur, tveir stórir laukar, tvær stórar bökunarkartfölur, ein sæt kartafla, stórt búnt af steinselju - smátt söxuð, tveir stórir stilkar af sellerí, ein stór rófa.
Skerið grænmetið í hæfilega bita áður en það er sett í pottinn. Nauðsynlegt er að eiga grænmetiskraft og í þetta sinn var notað um tvær matskeiðar af oscar grænmetiskrafti. Sjóðið í um klukkustund og smakkið súpuna til. Gott er að krydda hana með salti og pipar, örlitlu chilli og jafnvel súpujurtum. Í súpuna má setja svolítið af hrísgrjónum eða haframjöli þó það hafi ekki verið gert í þetta sinn.
|