Forsíða
Uppskriftir
Leita
Greinar
Hafa samband


Grilluð fiskispjót PDF Print E-mail
Matur unga fólksins   
07/05 2008 kl. 12:21:11

Sumarið er tíminn til að grilla. Það er fátt betra en góður fiskur og þurfa Íslendingar nauðynlega að losna við kredduna um að soðin ýsa með hamsatólg og soðnum kartöflum sé besta eldunaraðferðin þegar fiskur er eldaður. Í þetta skipti voru lax og steinbítur fyrir valinu ásamt ýmsu góðu grænmeti og kartöflubátum.

 

 dscf6350

 

 

Fyrst af öllu eru kartöflur skornar í báta og þeir settir í mjög salt vatn. Þar mega þeir liggja í klukkustund. Það er gert til þess að kartöflurnar verði stökkar við bakstur.

Þar næst er marineringin löguð og eru teknar fjórar plómur sem búið er að afhýða og þær maukaðar vandlega með töfrasprota eða matvinnsluvél. Tvær matskeiðar repjuolía, matskeið af sojasósu ásamt salti, paprikudufti og pipar er bætt við. Einnig má setja örlítinn chilli pipar. Þar næst er einn meðalstór laukur skorinn smátt og honum bætt við. Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita og setjið í marinering (300 gr lax og 200 grömm steinbítur). Leyfið þessu að liggja í um hálftíma í marineringunni.

Sem meðlæti valdi ég risarækjur sem oft er hægt að fá á góðu verði. Þýðið um 200 grömm og leyfið að liggja í olíulegi sem búið er að bragðbæta með tveimur krömdum hvítlauksgeirum.

Þegar kartöflurnar hafa fengið að liggja í vatninu eru þær skolaðar vel og þurrkaðar. Þær makaðar í olíu (ein matskeið nægir) og saltaðar og settar í ofn við 200°C. Fisknum er svo raðað á grillspjót ásamt grænmeti. Í þennan rétt notaði ég rauðlauk, græna og gula papriku og rauðlauk. Þegar kartöflurnar eru eldaðar (ekki brúnar heldur mjúkar í gegn) er fiskurinn settur inn í ofninn og hann eldaður á meðan kartöflurnar brúnast. Á þessum tímpunkti er tilvalið að steikja rækjurnar sem hafa fengið að liggja í hvítlauk í smá tíma.

Titillinn gefur vissulega til kynna að fiskurinn hafi verið grillaður og hvet ég eindregið til þess að það verði gert. Það var því miður ekki í þetta skiptið hér.

Gleðilegt sumar 

Last Updated ( 24/05 2008 kl. 04:36:38 )

http://www.maturungafolksins.com/


eXTReMe Tracker