|
Eins og lesendur vita er þessi síða ætluð ungu fólki sem er að byrja að standa á eigin fótum og laga sinn eigin mat. Því er engin uppskrift of einföld. Það sem er einfalt fyrir suma getur verið mjög flókið fyrir þá sem ekki eru öruggir í eldhúsinu og hafa varla kveikt á hellu fyrr. Þessi uppskrift er mjög einföld og þægileg, en jafnframt einstaklega bragðgóð. Uppskriftin er miðuð við 6 manns eða þá sem vilja eiga góðan afgang fyrir skólann daginn eftir.
Setjið 3 lítra af köldu vatni í pott og ásamt hálfri matskeið af grófu salti og sjóðið. Á meðan beðið er eftir suðunni er ágætt að skera niður grænmeti. Rífið í hæfilega stóra bita tvo salathausa (forðist að skera salatblöð, rífið þau heldur), skerið 12 cherry-tómata, hálfa agúrku og 250 grömm vínber (helst steinalaus). Þegar vatnið sýður er 500 grömmum af pasta skrúfum bætt í pottinn og þær soðnar „al-dente“. Eins og ég hef skrifað áður er gott að fara eftir leiðbeiningum um eldunartíma á pakka. Takið tímann og smakkið pastað til. Það á að vera mjúkt en örlítið stinnt við kjarnann. Ef það ofsýður verður það slepjulegt og vont. Sigtið vatnið frá og setjið pastað aftur í pottinn. Nú er bætt við einni dós af basilikum pestó og hrært vel í. Gott er að leyfa pastanu að kólna örlítið áður en það er borið fram. Þeir sem vilja gera sitt eigið pestó, er hægt að finna uppskrift að því HÉR Blandið pastanu saman við salatið og berið fram kalt. Ofur-einfalt, ofur-gott |