Forsíða
Uppskriftir
Leita
Greinar
Hafa samband


Bökuð kartafla með kreppufyllingu PDF Print E-mail
Matur unga fólksins   
07/10 2008 kl. 11:53:26
031008_5604m

Einfaldir og ódýrir réttir spila lykilatriði þegar spara á pening. Hollusta er einnig mjög 

mikilvæg ef þrauka á daginn og er þessi réttur er  tilvalinn við þær aðstæður sem eru á Íslandi í dag.

 

Tvær bökunarkartöflur eru soðnar í söltu vatni þar til auðveldlega er hægt að stinga í gegnum þær með prjón eða hníf. Þeir sem vilja geta soðið kartöflurnar til hálfs og sett í ofn eða á grillið. Á meðan kartöflurnar sjóða er fyllingin undirbúin. 100 grömm af niðurskornum kjúkling (tilvalið að nota afganga) og 50 grömm af skinku eru skorin í smáa bita. 1/4 lítri sýrður rjómi er hrærður saman með örlitlu aromati, smá sykri og svörtum pipar. Kjötinu bætt við.

Þegar kartöflurnar eru tilbúnar eru þær opnaðar og fyllingin sett í. Ferskt grænmeti, í þessu tilfelli rauðlaukur, rauð paprika, ruccola salat og gulrót er sett ofan á. Einfaldara verður það ekki.

Last Updated ( 07/10 2008 kl. 12:01:33 )

http://www.maturungafolksins.com/


eXTReMe Tracker