Dagur.org

Jesús er dæmi um kynlausa æxlun
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
30/07 2008 kl. 11:18:32

...alveg klárt mál.

 

Seinustu daga hefur veðrið verið alveg grillandi gott. Svo grillandi að ég brenndist sæmilega á fótum.

Mamma, Svenni og Arnar helgi komu um miðjan júlí og hjálpuðu okkur m.a. að flytja. Veðrið var ekkert spennandi á þeim tíma, svo það setti strik í reikninginn. Annars var mjög gaman að fá þau hingað í heimsókn.

Nýja húsið okkar er alveg milljón. Eins og að vinna í lotteríi eiginlega. Eitthvað af kanínunum verður slátrað á næstu dögum, en eggin munu enn rúlla út úr hænsnunum - og ég sver að þetta eru bestu egg sem ég hef smakkað. Ég smelli væntanlega eitthvað af myndum af húsinu á næstunni, svona þegar við erum búin að koma okkur betur fyrir.

Seinustu vikuna hefur verið um 30°C og glampandi sól. Kíktum á ströndina á mánudagsmorgun og hittum Afa Kristján þar ásamt hans föruneyti.

 Í dag er ég búinn með ljósmyndaverkefnið sem ég fékk fyrir fyrirtækið CHDK sem selur leðurjakka. Það hefur tekið allt of langan tíma.

 

Skrifa athugasemd (4 Athugasemdir)
Að blogga...
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
07/07 2008 kl. 10:06:09

Það hefur ekki heyrst mikið héðan í langan tíma. Ástæðan er einföld: bloggleiði og mikið að gera.

Af mér er það að frétta að ég hætti í þessari blessuðu lífefnafræði og fór að vinna um leið og ég gat. Í gær kláraði ég áttundu vaktina á sjö dögum og er kominn í tveggja daga frí. Ekkert spennandi í rauninni á þessum stað, en alveg ágætt samt sem áður. Ekkert action. Að vístu fékk ég að vera viðstaddur keisaraskurð á laugardag og sá ég það flesta sem getur farið úrskeiðis í deyfingu og svæfingu, að sögn læknisins. En þetta var mjög fróðlegt að sjá.

Ég hef líka fundið mér smá aukadjobb í ljósmyndun og gengur vel. Næsta session er eftir viku og svo viku þar á eftir líka. Nú erum við hins vegar að pakka niður öllu dótinu okkar því næsta sunnudag flytjum við í nýja heimilið okkar.  

Skrifa athugasemd (2 Athugasemdir)
Tröll
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
13/06 2008 kl. 13:21:23
Ég hef verið skilgreindur sem tröll og þarf því að kæla mig niður...Skrifa athugasemd (4 Athugasemdir)
<< Start < Fyrri síða 1 2 3 Næsta síða > End >>


eXTReMe Tracker