Dagur.org

Föstudagurinn þrettándi PDF  | Print |  Netfang
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
13/06 2008 kl. 06:27:10

Í dag er föstudagurinn 13. og því mun ég ekki fara neitt út í dag.

Ég hef fundið mér nýtt ævistarf og get því lagt læknadraumana á hilluna í bili. Ég ætla mér að verða gagnrýnandi. Mig langar til að ganga um bæinn og gagnrýna allt og alla sem á vegi mínum verða. Ég hugsa að það sé fáránlega gott djobb. Þegar ég hef fengið nóg af því ætla ég að verða athafnamaður. Því þarf ég að vera duglegur gagnrýnandi og vinna mér inn nægan pening fyrir góðu húsnæði sem auðvelt er að athafna sig í.

*** 

Vart þarf að segja lesendum að KISS tónleikarnir voru einstök standpína og ég gleymi þeim seint. Þeir sem hafa áhuga getað googlað KISS video eða farið á YouTube og skoðað myndbönd þaðan. Magnifico.

***

Ef ég er kominn með ógeð á einhverju, þá er það skólinn. Námsleiði og viðbjóður. Eins og staðan er hjá mér í dag hef ég margt annað að hugsa um en ólífræna líffræðilega efnafræði og eðlisefnafræði, því miður. En ég reyni að þrauka. 


User Comments

Athugasemd skrifuð af: GUEST on 2008-06-13 16:54:37
Já endilega, reyndu að þrauka.  
Ég veit ekki hvernig staðan er hjá þér núna eða hvað annað þú hefur að hugsa um en ég vona að þú sjáir fyrir endann á því og sjáir brátt blóm í haga. 
Puss o kram!



eXTReMe Tracker