Dagur.org

Að blogga... PDF  | Print |  Netfang
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
07/07 2008 kl. 10:06:09

Það hefur ekki heyrst mikið héðan í langan tíma. Ástæðan er einföld: bloggleiði og mikið að gera.

Af mér er það að frétta að ég hætti í þessari blessuðu lífefnafræði og fór að vinna um leið og ég gat. Í gær kláraði ég áttundu vaktina á sjö dögum og er kominn í tveggja daga frí. Ekkert spennandi í rauninni á þessum stað, en alveg ágætt samt sem áður. Ekkert action. Að vístu fékk ég að vera viðstaddur keisaraskurð á laugardag og sá ég það flesta sem getur farið úrskeiðis í deyfingu og svæfingu, að sögn læknisins. En þetta var mjög fróðlegt að sjá.

Ég hef líka fundið mér smá aukadjobb í ljósmyndun og gengur vel. Næsta session er eftir viku og svo viku þar á eftir líka. Nú erum við hins vegar að pakka niður öllu dótinu okkar því næsta sunnudag flytjum við í nýja heimilið okkar.  


User Comments

Athugasemd skrifuð af: GUEST on 2008-07-08 13:20:34
Loksins lifnadi hann vid.  
Ertu nokkur haettur vid ad verda laeknir?

Athugasemd skrifuð af: GUEST on 2008-07-08 16:40:59
Nei, nei, það er nú ennþá á planinu. Sér í lagi eftir keisaraskurðinn sem gaf ákveðið boost.



eXTReMe Tracker