Dagur.org

Samskipti mín við kennarana
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
28/05 2008 kl. 09:20:03

Eftir tímann í dag spyr kennarinn mig:

Þekkirðu Jonsson?

-Ég: Jónsson?

Jonsson

-Jónsson???

Já, heitir hann það?

- Ég veit það ekki

Hann er lektor við háskólann.

- Lektor hér í þessari deild?

Nei, Háskólann í Færeyjum

- Færeyjum?

Já, ertu frá Íslandi? 

Næst þegar einhver spyr mig kem ég frá Rússlandi og heiti Jósef Stalín.
Þar næst er ég kínverskur og heiti Hú Kom Pú. 

Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
Skotárásir og búferlaflutningar
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
23/05 2008 kl. 10:16:48

Þeir sem hafa lesið síðuna hennar Lísu nýlega vita að við erum að flytja bráðlega, eða seinast 1. ágúst. Sveitasælan virðist vera komin til að vera því við höfum ótakmarkaðan leigutíma o.s.frv.

Það verður líka mjög gott að flytja úr þessu hverfi sem við erum í. Seinast í gær var smá uppgjör milli einhverra brjálæðinga í sjoppu hér á Nørrebrogade og var byssa dregin upp og úr henni skotið. Enginn varð þó fyrir skoti, en þrír þurftu að fara upp á sjúkrahús þarf af einn sem var stunginn skærum.

Við höfum þó átt mjög fínar stundir hér á Frederikssundsvej, en þó saknar maður þess stundum að eiga ekki stærra eldhús. Þeir sem ekki vita, þá höfum við fengið hús til leigu. Um er að ræða 55 fm í gömlu og fáránlega sjarmerandi húsi sem liggur við annað stærra hús. Þar búa hjón á miðjum aldri og segjast þau leigja út húsið til að hjálpa ungu fólki sem er að koma sér af stað. Þvílík lukka að fá húsið, því við höfum leitað að húsnæði í þó nokkurn tíma og m.a. tapað á því 10.000 dönskum krónum.

Ekki nóg með það að húsið er í útjaðri kaupmannahafnar, heldur er á og skógur handan götunnar og hænur og kanínur í bakgarðinum. Þar er því mjög friðsælt að vera. En jafnvel þó maður sé búsettur fjarri látum er maður aldrei nógu öruggur. Því hef ég gengist til liðs við glæpagengi þar sem ég sé um fjármál, sem og fyrstu hjálp fyrir þá sem hafa lent illa í átökum, t.d. stungnir hnífi eða skotnir.

Höfuðpaurarnir vilja ekki hafa meðlimi sem draga að sér óþarfa athygli og því þarf ég að henda námsmannafötunum og hef fundið mér ný klæði. Í staðinn fæ ég sólarhringsvernd frá genginu. Afraksturinn má sjá hér að neðan.

 _mg_1466

 

 

Skrifa athugasemd (7 Athugasemdir)
Draumur allra kvenna
Höfundur Dagur Snær Sævarsson   
18/05 2008 kl. 17:13:51

Draumurinn

 

Skrifa athugasemd (8 Athugasemdir)
<< Start < Fyrri síða 1 2 3 Næsta síða > End >>


eXTReMe Tracker